bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 38
Isaiah 38
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 39 →
1
Um þessar mundir veiktist Hiskía og var að dauða kominn. Spámaðurinn Jesaja Amotsson kom þá til hans og sagði: „Svo segir Drottinn: Ráðstafa eigum þínum því að þú munt deyja en ekki lifa.“
2
Hann sneri sér þá til veggjar og bað til Drottins
3
og sagði: „Minnstu þess nú, Drottinn, að ég hef breytt í trúfesti og af einlægni fyrir augliti þínu og gert það sem gott er í augum þínum.“ Og Hiskía grét sáran.
4
Orð Drottins kom þá til Jesaja:
5
„Farðu og segðu við Hiskía: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, forföður þíns: Ég hef heyrt bæn þína og ég hef séð tár þín. Ég ætla að lengja ævi þína um fimmtán ár.
6
Ég mun bjarga þér og þessari borg úr höndum Assýríukonungs og ég mun vernda þessa borg.“
7
Þetta er táknið frá Drottni um að hann muni gera það sem hann hefur heitið:
8
Ég læt skuggann, sem þegar er kominn niður á sólskífu Akasar, færa sig upp um tíu stig. Þá færði sólin sig aftur um þau tíu stig sem hún hafði fært sig fram.
9
Sálmur sem Hiskía, konungur Júda, orti þegar hann hafði náð sér af veikindum sínum:
10
Ég sagði: Á miðjum aldri verð ég að fara burt, kvaddur að hliði heljar þau ár sem ég á eftir.
11
Ég sagði: Ég fæ ekki að líta Drottin á landi lifenda, fæ ekki framar menn að sjá meðal þeirra sem byggja heiminn.
12
Bústaður minn var rifinn niður, vafinn saman eins og tjald hjarðmanns. Þú vafðir líf mitt upp eins og vefari, skarst mig frá uppistöðunni. Frá morgni til kvölds þjakar þú mig.
13
Allt til morguns hrópaði ég á hjálp, hann molaði öll mín bein eins og ljón.
14
Ég tísti eins og svala, kurraði sem dúfa, augu mín mæna til hæða. Drottinn, ég er aðþrengdur, bjargaðu mér.
15
Hvað get ég sagt? Hann hefur bæði sagt mér þetta og gert það sjálfur. Ég vil ganga í auðmýkt öll æviár mín þrátt fyrir beiskju lífs míns.
16
Drottinn, vegna þessa lifa menn og því mun líf mitt styrkjast og þú munt veita mér heilsu og líf.
17
Beiskja mín varð mér til góðs, þú varðveittir líf mitt frá gröf eyðingarinnar því að þú varpaðir öllum syndum mínum aftur fyrir þig.
18
Helja þakkar þér ekki, dauðinn lofar þig ekki, þeir sem hverfa í gröfina vona ekki á trúfesti þína.
19
Sá einn sem lifir þakkar þér eins og ég nú í dag. Feður munu segja börnum sínum frá trúfesti þinni.
20
Drottinn, þér þóknaðist að hjálpa mér, því skulum vér leika á strengi við hús Drottins alla ævidaga vora.
21
Og Jesaja bauð að taka skyldi fíkjudeig og leggja á kýlið og mundi honum þá batna.
22
En Hiskía sagði: „Hvað skal ég hafa til marks um það að ég megi aftur ganga upp í hús Drottins?“
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 39 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66