bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 28
Isaiah 28
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 29 →
1
Vei hinum drembilega blómsveig drykkjurútanna í Efraím, hinu bliknaða blómi, hinni dýrlegu prýði hans á hæðarkollinum í hinum frjósama dal þar sem vínið lagði þá að velli.
2
Hetja Drottins, sterk og voldug, kemur sem haglskúr, mannskaðaveður, beljandi skýfall og varpar honum til jarðar af afli.
3
Hinn drembilegi blómsveigur drykkjurútanna í Efraím verður fótum troðinn.
4
Fara mun fyrir hinu bliknaða blómi, hinni dýrlegu prýði hans á hæðarkollinum í frjósama dalnum, eins og fíkju sem þroskaðist fyrir uppskerutímann. Sá sem kemur auga á hana gleypir hana um leið og hún kemur í lófa hans.
5
Á þeim degi verður Drottinn allsherjar dýrlegur blómsveigur og fagurt höfuðdjásn þeirra sem eftir verða af þjóð hans.
6
Hann verður þeim réttlætisandi sem situr í dómarasæti, og hetjumóður þeim sem hrekja árásarlið út um borgarhliðið.
7
Þessir menn slaga einnig af víndrykkju, skjögra af áfengum drykkjum, prestar og spámenn slaga af sterkum drykkjum, ruglaðir af víni, skjögrandi af drykkju, slaga er þeir sjá sýnir, riða er þeir kveða upp dóma.
8
Öll borð eru þakin spýju, enginn blettur laus við saur.
9
„Hverjum ætlar hann að veita þekkingu, fyrir hverjum útskýra opinberanir? Fyrir börnum, sem eru nývanin af mjólk, þeim sem eru nýtekin af brjósti?“
10
Því að hann segir: Boð á boð ofan, skipun á skipun ofan, nú þetta, þá hitt.
11
Með stamandi vörum á annarlegri tungu mun hann tala til þessa fólks,
12
hann sem sagði við þá: „Þetta er hvíldarstaðurinn, ljáið þreyttum hvíld, hér er endurnæring,“ en þeir vildu ekki hlusta.
13
Því mun orð Drottins koma til þeirra: Boð á boð ofan, skipun á skipun ofan, nú þetta, þá hitt svo að þeir fari og falli aftur á bak, beinbrotni, flækist í snörunni og verði teknir til fanga.
14
Heyrið því orð Drottins, skrumarar, sem drottnið yfir fólkinu sem býr í Jerúsalem.
15
Þér segið að sönnu: „Vér höfum gert sáttmála við Dauðann og samning við Hel. Þegar flóðbylgjan dynur yfir nær hún ekki til vor því að vér höfum gert lygi að hæli voru og falið oss í skjóli svika.“
16
Þess vegna segir Drottinn Guð: Sjá, ég legg undirstöðustein á Síon, traustan stein, valinn hornstein. Sá sem trúir flýr ekki.
17
Ég geri réttinn að mælivað og réttlætið að mælilóði. Þá mun hagl sópa burt hæli lyginnar og vatnsflóð skola burt skjólinu.
18
Sáttmáli yðar við dauðann verður rofinn og samningur yðar við helju fær ekki staðist. Þegar flóðbylgjan dynur yfir eins og svipa molar hún yður sundur.
19
Í hvert sinn sem hún hvolfist yfir þrífur hún yður með sér, hvern morgun ríður hún yfir, nótt sem dag og skelfilegt verður að skýra boðskapinn.
20
Rúmið er of stutt til að rétta megi úr sér, ábreiðan of mjó til að vefja henni um sig.
21
Því að Drottinn mun rísa upp eins og á Perasímfjalli, hann mun fyllast heift eins og í dalnum við Gíbeon. Hann mun vinna verk sitt, hið undarlega verk sitt, og inna af hendi starf sitt, hið annarlega starf sitt.
22
Látið nú af skruminu svo að fjötrar yðar herðist ekki því að ég hef heyrt um eyðinguna sem Drottinn, Guð allsherjar, hefur ákveðið um allt landið.
23
Hlustið og hlýðið á mál mitt, takið eftir og heyrið ræðu mína.
24
Plægir bóndinn allan daginn til að sá, ristir hann í sífellu akur sinn og herfar?
25
Nei, þegar hann hefur sléttað akurinn sáir hann sólselju og dreifir kúmeni, hann sáir hveiti og byggi og setur speldi í jaðar akursins.
26
Guð hans segir honum vel til verka og leiðbeinir honum.
27
Sólselja er ekki þreskt með þreskisleða né vagnhjóli velt yfir kúmen heldur er sólseljufræ slegið úr með staf og kúmen með stöng.
28
Er brauðkorn mulið í duft? Nei, ekki er það þreskt án afláts, vagnhjól og hestar fara ekki yfir það, það er ekki mulið í duft.
29
Einnig þetta kemur frá Drottni allsherjar, hann er undursamlegur í ráðum og mikill að visku.
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 29 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66