bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 44
Isaiah 44
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 43
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 45 →
1
Hlýð þú á, Jakob, þjónn minn, og Ísrael sem ég hef útvalið.
2
Svo segir Drottinn sem skapaði þig, mótaði þig í móðurlífi og hjálpar þér: Óttast ekki, Jakob, þjónn minn, Jesjúrún sem ég hef útvalið
3
því að ég helli vatni yfir hið þyrsta land og veiti ám um þurrlendið. Ég úthelli anda mínum yfir niðja þína og blessun minni yfir börn þín.
4
Þau munu dafna eins og sef við vatn, eins og pílviðir á lækjarbökkum.
5
Eitt þeirra mun segja: „Ég heyri Drottni til,“ annað mun nefna sig nafni Jakobs, enn annað rita á hönd sér: „Eign Drottins“, og taka sér sæmdarheitið Ísrael.
6
Svo segir Drottinn, konungur Ísraels, lausnarinn, Drottinn allsherjar: Ég er hinn fyrsti og ég er hinn síðasti. Enginn Guð er nema ég.
7
Hver er sem ég? Hann gangi fram og tali og lýsi því yfir, skýri mér frá því. Hver sagði fyrir um framtíðina í upphafi?
8
Skelfist ekki og látið ekki hugfallast. Lét ég yður ekki heyra þetta, boðaði það frá öndverðu? Þér eruð vitni mín. Er nokkur annar Guð en ég? Enginn annar klettur er til það ég veit.
9
Þeir sem gera skurðgoð eru einskis nýtir og guðirnir, sem þeir elska, eru fánýti og vitni þeirra sjá ekkert, vita ekkert og verða sér til skammar.
10
Hver gerir skurðgoð eða steypir líkneski nema til þess að hafa gagn af því?
11
Allir sem reiða sig á það verða sér til skammar. Smiðirnir eru aðeins menn, þeir ættu að safnast saman og taka sér stöðu, þeir mundu allir skelfast og verða sér til skammar.
12
Járnsmiður vinnur verk sitt við glóðir, slær smíði sína til með hamri og mótar hana með sterkum armi. Þegar hann hungrar missir hann máttinn, fái hann ekki vatn að drekka þreytist hann.
13
Trésmiður mælir með þræði, dregur upp útlínur með krít, sker út viðinn með hnífi sínum, markar fyrir með sirkli og gerir mannsmynd, fríðleiksmann sem á að búa í húsi.
14
Hann fellir sedrustré, velur sér steineik eða aðra eik, lætur trén vaxa innan um önnur skógartré. Hann gróðursetur ask sem regnið veitir vöxt
15
svo að hann nýtist mönnum til eldiviðar. Hann tekur nokkuð af viðnum og ornar sér, kveikir eld við hluta hans og bakar brauð, úr nokkru gerir hann guð og fellur fram fyrir honum, mótar hann sem líkneski og krýpur fyrir því.
16
Helminginn af viðnum brennir hann í eldi, á glóðinni steikir hann kjöt, etur steik og verður saddur, hlýjar sér og segir: „Nú er mér vel heitt, ég nýt eldsins.“
17
Úr því sem gengur af gerir hann sér guð, skurðgoð sem hann krýpur fyrir, tilbiður og segir: „Hjálpa mér því að þú ert guð minn.“
18
Þeir skynja hvorki né skilja því að augu þeirra eru lokuð svo að þeir sjá ekki, og hjörtu þeirra einnig svo að þeir skilja ekki.
19
Hann hugsar ekki neitt, hefur hvorki skyn né skilning til að segja: „Ég brenndi helming viðarins í eldi og bakaði brauð við glæðurnar, steikti á þeim kjöt og neytti en úr því sem eftir var gerði ég mér viðurstyggð og ég kraup fyrir trjádrumbi.“
20
Þann mann, sem sækist eftir ösku, hefur táldregið hjarta blekkt og hann bjargar ekki lífi sínu og segir: „Er það ekki tál sem ég hef í hægri hendi?“
21
Minnstu þess, Jakob, og þú, Ísrael, að þú ert þjónn minn. Ég skapaði þig, þú ert þjónn minn, Ísrael, þér gleymi ég ekki.
22
Ég feykti burt afbrotum þínum eins og skýi, syndum þínum líkt og þoku. Hverf aftur til mín því að ég hef endurleyst þig.
23
Fagnaðu, himinn, því að Drottinn hefur gert þetta, gleðjist, undirdjúp jarðar. Hefjið fagnaðaróp, þér fjöll, skógurinn og öll tré í honum, því að Drottinn hefur endurleyst Jakob og birt dýrð sína í Ísrael.
24
Svo segir Drottinn, lausnari þinn, sá sem myndaði þig í móðurlífi: Ég er Drottinn sem skapaði allt, ég einn þandi út himininn og breiddi út jörðina hjálparlaust,
25
ég ónýti tákn spápresta og geri spásagnamenn að fíflum og vitringa afturreka og visku þeirra að heimsku.
26
Ég læt orð þjóna minna rætast og geri það sem sendimenn mínir boða.
27
Ég segi við Jerúsalem: „Þú verður byggð aftur,“ og við borgirnar í Júda: „Þér verðið endurreistar,“ ég reisi þær aftur úr rústum. Ég segi við hafið: „Þorna þú upp, ég þurrka upp ár þínar.“
28
Ég segi við Kýrus: „Þú ert hirðir minn,“ allt, sem mér þóknast, framkvæmir hann með því að segja við Jerúsalem: „Þú verður endurreist og grunnur musterisins lagður.“
← Chapter 43
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 45 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66